Fallegur svartur kjóll frá danska hönnunarmerkinu Bitte Kai Rand í stærð XL. Kjóllinn er með síðum ermum, ferköntuðu hálsmáli og síðu, örlítið útvíðu sniði. Skemmtilegir vasar að framan og fallegar saumalínur gefa honum stílhreint og tímalaust yfirbragð. Vandaður og fjölhæfur kjóll sem hentar bæði hversdags og við fínni tilefni.