Fallegur, síður blómakjóll frá danska merkinu Luxzuz í stærð 46. Kjóllinn er ljós í grunninn með rómantísku blómamynstri í bleikum, brúnum og ferskjulituðum tónum. Með síðum ermum, tölum að framan og bandi í mitti sem hægt er að stilla. Pils í þrepum gefur kjólnum fallegt og létt fall. Glæsilegur og þægilegur kjóll sem hentar bæði hversdags og við fínni tilefni.