Fallegur rómantískur kjóll frá Hell Bunny í stærð 2XL. Ljós kremaður kjóll með fallegu rósamynstri í rauðum, bleikum og fjólubláum tónum. Ermalaus með rúnnuðu hálsmáli, aðsniðnum efri hluta og víðu, rykktu pilsi. Rennilás að aftan. Klassískt vintage-innblásið snið sem hentar vel í veislur, á sumrin og við sérstök tilefni.